Data may be outdated
Last updated: 1 month ago — Click refresh to get the latest statistics.
Best Fyrir var stofnuð í janúar 1995. Þá hét hljómsveitin Getuleysi og samanstóð af trommaranum- og söngvaranum Brynjari Davíðssyni eða BinnaD, bassaleikaranum Elmari Sindra Eiríkssyni eða ElmariE og gítarleikaranum og söngvaranum Kristjáni Kristjánssyni eða Kidda hvíta. Nafninu var senn breytt í Vonleysi og síðan í Best Fyrir þegar meðlimir reyndu sig á bar- og ballmarkaðnum. Þá höfðu Kristján Elí Örnólfsson sólógítarleikari, Elmar Steindórsson trommari og Jens Ólafsson söngvari- og hryngítarleikari bæst við bandið. Vorið 1997 skildu leiðir og Best Fyrir lagðist í dvala.
Árið 2002 dustuðu BinniD og ElmarE rykið af Best Fyrir og gáfu út Lífið er aðeins...þessar stundir vorið 2003 í samstarfi við Atla Má Rúnarsson.
Næst var blásið til sóknar árið 2008. Þá sem áður voru BinniD og ElmarE við stýrið. Á augnabliki...lokar þú augunum kom út árið 2009 og var Best Fyrir þá skipuð BinnaD, ElmariE, bassaleikararnum Bergþóri Rúnari Friðrikssyni, trymblinum Sverri Frey Þorleifssyni, harmonikkuleikaranum Hans Friðriki Hilaríusi Guðmundssyni og gítarleikaranum Guðmundi Aðalsteini Pálmasyni. Á plötunni var gnótt gestasöngvara. Þetta voru Jónína Björk Stefánsdóttir, Matthías Matthíasson, Helgi Þórsson, Rúnar Þór Pétursson og Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Að auki söng Rúnar Júlíusson lagið Ég þrái að lifa sem reyndist það síðasta sem hann söng á lífsleið sinni.
Árið 2024 er Best Fyrir enn á ný komin á stjá. BinniD syngur, ElmarE er á bassa, Bergþór Rúnar á gítar og Pétur Guðjónsson trommar.

Monthly Listeners
948
Monthly Listeners History
Track the evolution of monthly listeners over the last 28 days.
Followers
178
Followers History
Track the evolution of followers over the last 28 days.
Top Cities
5 listeners